Flugfélagið British Airways er í töluvert erfiðum málum eftir að hafa hundsað kvartanir eins farþega sem taldi sig hafa verið bitin af pöddum í vél flugfélagsins milli New York og London. Eftir að hafa ekki fengið annað en frost og leiðindi hjá flugfélaginu bloggaði viðkomandi einstaklingur um málið og skömmu síðar var það komið á forsíður dagblaða.
Ekki aðeins bloggaði viðkomandi um að hafa orðið fyrir tugum skordýrabita í vélinni heldur birti einnig grafískar myndir með.
Blaðamenn stórblaðsins Financial Times ráku augun í bloggfærsluna og birtu frétt og nú er töluverð ágjöf á British Airways sem hefur loks beðist afsökunar og greitt viðkomandi skaðabætur.
Er talið víst að um svokallaðar rúmpöddur, bed bugs, sé að ræða en þær eru orðnar verulegt vandamál í New York og víðar.






