H ið nýja flugfélag Play virðist ætla að veita Icelandair drjúga samkeppni á vinsælum leiðum á næstu mánuðum. Undantekningarlítið að bjóða mun lægra verð til Parísar.

Nokkru munar á flugi til og frá París á næstunni. Samsett mynd

Við kíktum á fargjaldatöflu beggja flugfélaga til og frá París næstu mánuðina og leituðum uppi lægstu fargjöld beggja fram og aftur með að minnsta kosti vikulangri dvöl í frönsku höfuðborginni.

Líkt og sjá má á meðfylgjandi töflu kom Play vel út úr þeim samanburði gagnvart Icelandair. Á töfluna vantar reyndar franska flugfélagið Transavia sem einnig býður beint flug á milli og er á köflum enn ódýrari kostur en Play.

En að þessu sinni einbeittum við okkur að þessum íslensku og sem fyrr er um sardínufarrými að ræða með ekkert meðferðis. Þá skal og hafa bak eyra að fargjöld hækka og breytast linnulítið hjá öllum flugfélögunum og ber að taka niðurstöðurnar með því saltinu.