Það er alveg óhætt að setja stórt spurningarmerki við hvort raunveruleg samkeppni ríki í flugi til og frá landinu sé horft til þess hversu háar upphæðir þeir þurfa að greiða sem búa erlendis og langar að koma heim í fjölskyldu- og vinafaðm yfir jólahátíðina.

Þrátt fyrir samkeppni er keimlíkt verð á flugfargjöldum Icelandair og Wow Air fyrir jólin.
Fararheill fór aðeins á stúfana og kannaði jólafargjöld Wow Air og Icelandair frá Kaupmannahöfn og London. Margar ferðir eru beinlínis uppseldar og þær sem eftir eru kosta sitt. Einhver gæti hnusað og sagt sem svo að fólki er sjálfu um að kenna að bóka flug þegar svona skammt er til jóla en þeir sem það gera hafa líklega aldrei búið erlendis. Fjölmargar ástæður geta verið fyrir því að fólk getur ekki bókað flug heim með góðum fyrirvara.
Frá Kaupmannahöfn er ekki komist þegar þetta er skrifað heim fyrir jól og út aftur skömmu eftir áramót undir 57 þúsund krónum á manninn með Wow Air og þar enginn farangur meðferðis. Afar líklegt er að fólk sem heim kemur um jól taki með sér tösku og jafnvel aðra undir gjafirnar. Ein taska ofan á fram og aftur bætir tíu þúsund krónum ofan á verðið sem þá er komið langleiðina í 70 þúsund á mann. Ekki er skárra ástandið hjá Icelandair þó ekki sé þar allt uppselt ennþá. Lægsta verð á flugsæti hjá þeim fyrir jól og heim aftur snemma á næsta ári kostar að lágmarki 70.593 krónur en þar farangur innifalinn. Sem sagt: verðlagning beggja frá Köben nánast sú sama og hér ágætt að hafa í huga að allra lægsta fargjald svona þess utan með Wow Air báðar leiðir til Köben og heim fæst kringum 25 þúsund krónur. Það er verðhækkun upp á lítil 132 prósent. Lægstu fargjöld Icelandair þessa leið að jafnaði fást niður í 35 þúsund eða svo.
Frá London er aðeins betra ástand. Aftur eru margar ferðir Wow Air uppseldar en þó hægt að komast niður í 48.977 krónur lægst þegar þetta er skrifað. Aftur er Icelandair ekki langt frá þessu verði. Heimferð 21. desember og út aftur þann 10. kostar þar rúmar 51 þúsund krónur. Sem er lægra verð en Wow Air býður sé taska eða töskur með í för. Það breytir ekki því að þetta er helmingi hærra verð en greiða þarf flesta aðra mánuði ársins fyrir flug fram og aftur til London.
Engin hjálp er heldur í easyJet í þessu tilfelli frá London. Allra lægsta fargjaldið þar á bæ fyrir jól og út fljótlega eftir áramótin kostar 48 þúsund krónur og sama þar uppi á teningnum og hjá Wow Air að sæti eru af æði skornum skammti. Sömuleiðis hér eru fargjöldin hundrað prósent hærri en að meðaltali aðra mánuði ársins.







