Myndir þú greiða tæplega 330 prósent hærra verð fyrir ívið lengra og leiðinlegra flug með millilendingu en að fljúga þráðbeint á áfangastað?

Missa af fjörinu og fara fyrsta janúar eða greiða hönd og fót og fara annan janúar? Skjáskot

Missa af fjörinu og fara fyrsta janúar eða greiða hönd og fót og fara annan janúar? Skjáskot

Nei annars, við skulum umorða spurninguna. Myndir þú greiða rúmar 83 þúsund krónur fyrir óbeint flug aðra leiðina frá Keflavík til München í Þýskalandi?

Það er í raun þessi spurning sem þú verður að spyrja þig ef þú þarft nauðsynlega að komast til þýsku borgarinnar strax eftir áramótin. Ertu tilbúin að fórna áramótagleði og vakna eldsnemma í flug þann 1. janúar? Eða mögulega djamma alla nóttina og vera glaður og mjög reyfur á flugvellinum og í fluginu út? Ellegar sofa bara út, fresta ferðinni til 2. janúar og greiða þá 330 prósent hærra verð?

Þetta er í alvöru það sem í boði er hjá Icelandair þessa stundina. Beint flug eldsnemma þann 1. janúar fyrir 19.605 krónur á almennings farrými eða fara út 2. janúar, millilenda í Osló og þaðan áfram til München á almennings farrými flex fyrir 83.055 krónur.

Galinn verðmunur aðra leiðina til Þýskalands.