Ellefu þúsund kallinn til Köben. Tuttugu og þrjú þúsund til New York eða tíkallinn til Amsterdam. Hljómar þokkalega príma ekki satt?

Þú hefur tæpar tvær vikur til að negla tilboð á flugi með Icelandair hingað og þangað um heiminn næstu mánuðina. Skjáskot

Ofangreint eru lægstu verð á flugi með Icelandair aðra leið til þessara borga á ódýrasta farrými með aðeins handfarangur meðferðis. Hér um að ræða tímabundin tilboð á flugi. Tilboð sem verður að negla eigi síðar en 23. október til að njóta.

Ólíkt því sem verið hefur hjá Icelandair nær tilboðið til mun lengri tíma en venjan er hjá flugfélaginu. Fólk hefur fram í miðjan maí á næsta ári til að halda af stað.

Kjörið að grípa þessa gæs enda Icelandair að bjóða töluvert betra úrval áfangastaða en nokkur annar aðili hérlendis.

Allt um málið hér.