Yfirvöld í Tælandi reyna nú ákaft að endurhanna og bæta flóðavarnir landsins í kjölfar mestu flóða sem konungsdæmið hefur orðið fyrir í sögu landsins á síðasta ári. Nú styttist í aðal regntímann á nýjan leik og fræðingar óttast að flóð verði vandamál næstu árin.
Ekki er svo ýkja langt síðan loks náðist að hreinsa allt vatn af götum Bangkok eftir að stór hluti borgarinnar hafði verið undir vatni frá því í október þegar miklar rigningar orsökuðu flóð víða um landið. Reyndar er enn flóðavatn frá þeim tíma að finna í úthverfum höfuðborgarinnar þó miðborgin sjálf og helstu ferðamannastaðir hafi nú að mestu alveg sloppið.
Það gerðu hins vegar ekki 680 manns sem létust í flóðunum um land allt í viðbót við milljónir sem misstu fæði og húsnæði við hamfarirnar sem eru þær verstu í sögu landsins.
Regntíminn í Tælandi fer að mestu eftir monsún rigningunum ár hvert og er misjafn eftir stöðum. Líkurnar á rigningum eru þó mestar frá júní og fram á haust og jafnvel vel fram á vetur eins og raunin varð í fyrra.
Fræðingar telja að gera þurfi miklar og kostnaðarsamar breytingar til að verja borgir á borð við Bangkok. Það verkefni sé ekki auðvelt og geti tekið nokkur ár að framkvæma. Á þeim tíma séu borgir og bæir í hættu verði sams konar rigningar og á síðasta ári.






