Tíðindi

Dýrast að gista í Danmörku og Svíþjóð

  01/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Hvergi í Evrópusambandinu er dýrara að meðaltali að halla höfði að kodda á gististað en í Svíþjóð og Danmörku samkvæmt nýrri úttekt byggðri á rauntölum síðasta ársfjórðungs 2011.

Er það gistivefurinn Hotel.info sem tekur reglulega saman meðalverð á gistingu víðs vegar í heiminum og sé aðeins litið til landa innan Evrópusambandsins er himinn og haf milli meðalverðsins innan sambandsins. Gæti það komið að notum ferðamanna sem vilja eða þurfa að ferðast ódýrt.

Þannig kostar gisting mest að meðaltali í Svíþjóð en þar greiddu menn 22.465 krónur fyrir nóttina miðað við gengi dagsins. Danmörk kom þar rétt á eftir en meðalkostnaður á nótt þar í landi nam 20.658 krónum.

Allt annað mál er að planta þreyttum rassi á rúm í Litháen. Nóttin þar í landi kostar að meðaltali aðeins 10.090 krónur og aðeins örlítið dýrara meðalverð í Prag í Tékklandi eða 11.001 króna

Hér skal hafa í huga að bæði Sviss og Noregur, sem hvorug eru í Evrópusambandinu, hafa reynst enn dýrari en þau dýrustu á þessum lista.

Listinn í íslenskum krónum:

  • Svíþjóð – 22.465
  • Danmörk – 20.658
  • Bretland – 20.085
  • Finnland – 19.405
  • Frakkland – 17.290
  • Pólland – 11.968
  • Portúgal 11.771
  • Ungverjaland – 11.236
  • Tékkland – 11.001
  • Litháen – 10.090