Það er eitthvað verulega rangt við bissnessmódel Skúla Mogensen hjá Wow Air. Séu viðskiptavinir ósáttir með eitthvað og láti það í ljós er þeim umsvifalaust hótað og í tilfellum strax hringt á lögreglu.

Ósáttur við hvernig Wow Air Skúla Mogensen er að koma fram við þig og þína? Þá best að halda kjafti. Skjáskot

Ferðavefurinn túristi greinir frá því nýlega að íslensk stjórnvöld séu í óða önn að undirbúa björgunarplan fyrir Icelandair og Wow Air. Flugfélögin séu orðin svo mikilvæg fyrir íslenskan efnahag að þau séu orðin „of stór til að falla.“

Það var og. Eigendur Icelandair, að frátöldum helstu lífeyrissjóðum landsins, er ríkasta fólkið á klakanum og einkaeigandi Wow Air er margmilljarðamæringur sem kemur fram við viðskiptavini sína eins og rusl á Sorpu.

Endilega koma á fót björgunarsjóði fyrir flugfélögin. Það er jú ekki eins og fjölmargir erlendir aðilar séu reiðubúnir að stökkva inn ef annaðhvort Icelandair eða Wow Air detta dauð niður einn góðan veðurdag. Ísland hættir ekkert að vera funheitt ferðamannaland þó hingað fljúgi aðeins erlend flugfélög.

Á sama tíma ráfa þúsundir ungra Íslendinga um heimilislausir, vegakerfi landsins á pari við Angóla, ljósmæður fá skítalaun, engin verslun eða veitingastaður tórir án þess að meginhluti starfsfólks sé pólskur, mengun á þéttbýlum svæðum á pari við stærstu borgir heims og aldrað fólk á heimilum þarf að deila herbergi með sex öðrum eins og í kommúnu í Sovét fyrir 50 árum.

En já, endilega eyða formúgum í að „bjarga“ bjargarlausum flugfélögunum. Sérstaklega flugfélögum sem koma svona fram við viðskiptavini sína:

En við hverju er að búast þegar lágtvirtur ferðamálaráðherra hefur sterk tengsl við bæði Mogensen hjá Wow Air og Engeyjarætt Bjarna Ben.

Hvar er Katrín Jakobsdóttir eða er henni alveg sama?