Þá sjaldan við erum himinlifandi með Icelandair!!! Forráðamenn þess loks litið upp úr lónni í naflanum og það á verulega óvæntan hátt.

Icelandair hyggst nú breiða úr sér erlendis. Sem segir sitt um stöðuna hér heima. Mynd Boeing

Erlendir ferðamiðlar greina frá því að Icelandair sé hugsanlega að kaupa tæplega helmingshlut í flugfélaginu Azores Airlines, sem er dótturfyrirtæki SATA Air Açores, sem aftur er einkafyrirtæki og eina flugfélagið sem flýgur reglulega til og frá Azoreyjum. (Já, við notum Azoreyjur sökum þess að Asóreyjur hljómar kjánalega og hið fyrrnefnda er mun fallegra.)

Hvers vegna erum við himinlifandi? Jú, sökum þess að sé eitthvað eitt landsvæði sem er náskylt Íslandinu fagra á þessum hnetti þá eru það vafalaust Azoreyjur Portúgal. Azoreyjur liggja, eins og Ísland, mitt á Atlantshafshryggnum. Þær liggja, eins og Ísland lengst úti í ballarhafi og íbúar þess, eins og Íslendingar, hafa löngum þurft að berjast duglega fyrir litlu. Svo eru eyjurnar hver annarri fallegri og þar mjög skæður keppinautur við Ísland í fegurð og dásemdum. Plús auðvitað að hitastigið er öllu ljúflegra á Azoreyjum en hér töluvert ofar á Atlantshafinu.

Nú eru forráðamenn Icelandair væntanlega EKKI að horfa til þess að bjóða klakabúum á Fróni upp á beinar ferðir ef kaupin verða að veruleika. Öllu frekar að copy-paste á það sem gert hefur Ísland að eftirlætis stoppi milljóna á örfáum árum. Þeir vonast líklega til að gera Azoreyjur að næsta Íslandi og í leiðinni auðvitað græða fúlgur fjár.

Við hér, hafandi heimsótt Azoreyjur tvívegis gegnum tíðina teljum víst að Icelandair geti bara vel stóraukið ferðamannastraum til þeirra eyja og heimtað nægilega feita seðla fyrir svo hluthafar brosi breiðar á næsta aðalfundi.

Á móti kemur að þetta þýðir líklega að stjórnendur flugfélagsins telja vonlítið að bæta við áfangastöðum til og frá Íslandi frekar en orðið er og græða á. Til þess er samkeppnin einfaldlega orðin of hörð og við hér of fá.

En kannski, kannski, einn góðan veðurdag býður Icelandair upp á kynningarflug til Azoreyja beint frá klakanum. Þá verður við öll hér fyrst í röðina 😉