Vonum innilega að enginn lesandi þurfi nokkurn tímann að fá tösku sína í hendur í tætlum eftir einfalt flug frá A til Ö. En ef það gerist og þú ert að ferðast með Wow Air máttu bíða til eilífðarnóns eftir svörum eða bótum.

Afar eðlilegt að fá farangur í tætlum af færibandinu og flugfélagið svarar ekki einu sinni skeytum. Skjáskot
Jamm, sama fyrirtæki og bætir við nýjum áfangastöðum örar en klamydía sýkir unglingana, er ekkert mikið áhugasamt um að koma til móts við fúla farþega. Þeir mega bara eiga sig að því er virðist og ef marka má ítrekaðar kvartanir á twitter.
Það er sem við segjum; ef ekkert bjátar á er Wow Air flottur ferðamáti. En ef eitthvað kemur upp á máttu biðja fyrir þér því enginn hjá Wow Air er að fara að lyfta augnbrún til að aðstoða þá sem lent hafa í veseni.
Gaman að því að íslenskt lággjaldaflugfélag skuli vera með lægstu einkunn allra lággjaldaflugfélaga í Evrópu. Klöppum fyrir Mogensen…







