Rétt rúm vika síðan við hér bentum á að flugfélagið Icelandair væri að auglýsa fargjöld á lægra verði en fást í raun en slíkt er ólöglegt samkvæmt íslenskum neytendalögum. Icelandair virðist slétt sama.
Slétt sama sökum þess að nú fundum við aftur sams konar dæmi á bókunarvef flugfélagsins. Það hefur sem sagt enginn hjá flugfélaginu lyft litla fingri í rúma viku til að færa mál til betri vegar og fylgja lögum og reglum þessa lands. Lögum og reglum sem eiga að vernda neytendur.
Eins og við sjáum hér að neðan á lægsta verð á flugi heim á leið frá París í júlí að vera 21.090 krónur á sardínufarrými. En það er sama hvað við skrollum fram og aftur eða upp og niður, hvergi finnst lægra verð en 25.790 krónur. Sem er hvorki meira né minna en 22 prósent hærra verð en gefið er í skyn.
Er til of mikils mælst að fylgja lögum og reglum hjá flugfélagi sem eru að stórum hluta í eigu landsmanna gegnum lífeyrissjóðina? Og ef þeir ráða ekki bót á því sjálfir má Neytenda-, eða Samgöngustofa gjarnan grípa í tauma með valdi.








