Stór hluti ferðamanna, íslenskra sem erlendra, velur sér áfangastað ekki aðeins eftir veðri, vindum og heillandi náttúruundrum heldur ekki síður eftir hversu hagkvæmt er að versla. Það á kannski sérstaklega við um Íslendinga í kjölfar hruns gjaldmiðilsins enda nú nauðsyn á ný fyrir velflesta að nýta hverja krónu eins og hægt er.
Ráðgjafafyrirtækið Mercer velur árlega dýrustu og ódýrustu borgir heimsins eftir ákveðnum stöðlum og hefur nú birt niðurstöður sínar fyrir árið 2010. Flestum Íslendingum er velkunnugt um þær dýrustu því þær eru ekki fjarri en þær ódýrustu eru því miður flestar í ljósárafjarlægð. Engu að síður, láta fólk sig ekki muna um langt flug, er þar hægt að gera sannkölluð kjarakaup á íslenskan mælikvarða. Vara skal þó hafa á því glæpir eru algengir í mörgum þeirra.
Ódýrustu borgirnar nú eru:
- Windhoek, Namibíu
- Tequcigalpa, Hondúras
- Kalkutta, Indlandi
- Addis Ababa, Eþíópíu
- Bishkek, Kírgistan
- Ashkabad, Turkmenistan
- La Paz, Bólivíu
- Íslamabad, Pakistan
- Managua, Níkaragua
- Karachi, Pakistan






