Flugfélagið Icelandair blæs nú í lúðra þriðja sinni á skömmum tíma og auglýsir ný hraðtilboð til Kaupmannahafnar, Amsterdam og Seattle.
Fæst þannig frá miðnætti í kvöld og til miðnættis annað kvöld, 31. ágúst, flugmiði til Kaupmannahafnar á 14.900 aðra leiðina eða 29.300 báðar leiðir og nær ferðatímabil frá 14. september til 19. desember. Ódýrasta hefðbundna fargjaldið sem finnst á vef Icelandair í dag kostar 35.830 báðar leiðir og afslátturinn því 6.530 krónur.
Sömuleiðis er þá hægt að komast til Amsterdam aðra leiðina fyrir 16.900 krónur og báðar á 34.800 krónur. Einnig nær ferðatíminn frá 26. september til 16. desember. Hér er hægt að gera kostakaup miðað við ódýrustu hefðbundnu fargjöld flugfélagsins til Amsterdam. Finnast þau ódýrast fram og til baka á 60.360 krónur.
Önnur leiðin til Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna fæst nú á 36.900 og fram og til baka á 68.700 krónur. Skemmri tími er þó til ferðalagsins sem verður að fara milli 19. október til 13. desember. Er þetta öllu ódýrara en ódýrasta hefðbundna fargjaldið sem nú finnst á vef þeirra en það kostar 106.850 krónur.






