Tíðindi

Hætta á krabbameini í háloftunum?

  30/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Þeir sem fljúga oft og reglulega langar flugleiðir yfir Norðurpólinn ættu að drífa sig til læknis og fá þar allsherjarúttekt ef marka má breskan vísindamann sem telur að breytingar sem eiga sér stað á sólinni geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir flugfarþega á þessari leið í framtíðinni.

Vísindamaðurinn, Mike Lockwood, sem er töluvert virtur í sínu fagi í náttúrueðlisfræði við háskólann í Reading segir að nú þegar sólin sé að detta inn í hægláta fasa eftir töluverð umbrot síðustu áratugi þýði það meiri ógn fyrir flugfarþega sem fljúga oftar en tvisvar til þrisvar sinnum árlega yfir Norðurpólinn.

Það gera flestir þeir sem ferðast ætla frá New York til Sól í S.Kóreu eða milli London og San Francisco og þeir gæti orðið fyrir meiri geislun sólgosa í framtíðinni en nú er. Slík geislun gæti aukið líkurnar á krabbameini.

Í samtali við Daily Mail í Bretlandi þvertekur Lockwood fyrir að vera of svartsýnn og fullyrðir að hættan sé sannarlega fyrir hendi.

Engar reglur gilda um geislamengun farþega í millilandavélum og þaðan af síður er kannað hvort það eigi við rök að styðjast.

Skýrslu Lockwoods má finna hér í heild sinni.