V ið hér höfum reglulega gegnum tíðina bent á portúgölsku borgina Aveiro sem príma stopp í því ágæta landi. Borgin oft kölluð Feneyjar Portúgals. Og nú er komin ný ástæða til heimsóknar: lengsta göngubrú heims.

Glæný og tignarleg göngubrúin sem um ræðir. Mynd Tormosa.pt

Lesa má nokkuð ítarlega um borgina atarna í vegvísi okkar hér að ofan en hér hafa ristjórnarmeðlimir dvalið þrívegis á síðustu tíu árum og aldrei vonbrigði. Borgin þægilega lítil og ekki oftroðinn af ferðafólki þó vinsæll sé.

Og útivistarfólk gæti gert verri hluti en tölta örlítið út fyrir borgina þessi dægrin að Paiva-ánni sem liggur í djúpu gljúfri skammt frá. Yfir það gljúfrið er nefninlega búið að byggja göngubrú og ekki bara hvað göngubrú sem er heldur lengstu göngubrú heims!

Brúin, 516 Arouca svo kölluð, spannar hvorki meira né minna 516 metra yfir 180 metra djúpt gljúfrið. Ekki fyrir lofthrædda mikið og þolið þarf að vera örlítið því það tekur meðalmann rúmar tíu mínútur að ganga yfir.

Toppstopp af þú þráir smá náttúru á þessum slóðum.