Það er ekki af þeim skafið á Balear-eyjum á Spáni. Ekki nóg að búið sé að banna hvers kyns nekt í Palma, skrílslæti á Magaluf, götudrykkju í Santa Ponsa og leggja á sérstakan túristaskatt. Nei, nú skal líka meina ferðamönnum að mæta á bílum sínum.

Umferðarteppur þykja orðið of mikið vandamál á Balear-eyjum á Spáni og þarlendir hyggjast taka á þeim vanda.
Balear-eyjar eru vitaskuld Mallorca, Ibiza, Formentera og Menorca en þar eru velflestir heimamenn komnir með upp í kok af yfirgnæfandi fjöldatúrisma og það jafnvel þó túrismi sé langstærsti atvinnuvegur eyjanna og hafi verið lengi.
En öllum má ofbjóða og nú hyggjast eyjaskeggjar koma í veg fyrir enn verri umferðarteppur með því að meina ferðafólki að koma bílandi með ferjum. Slíkar ferjur ganga reglulega til eyjanna frá Barcelóna, Valencía og Denía og fjölmargir sem taka bifreiðar sínar með um borð.
Hér er þó fyrst og fremst verið að verja eyjurnar Formentera og Menorca og ekki verður hart tekið á þeim er mæta bílandi til Mallorca. Ekki aðeins er verið að vernda blóðheita ökumenn eyjanna sjálfra gegn langvinnum teppum heldur og vernda umhverfið en Menorca er til dæmis öll friðlýst sem sérstakt náttúruvætti af hálfu heimsminjastofnunar SÞ.
Hvers vegna núna kann einhver að spyrja. Spánverjar búast við metfjölda ferðamanna til landsins í sumar þar sem önnur vinsæl sumarleyfislönd eins og Egyptaland eða Tyrkland þykja of hættuleg heimsóknar. Yfirvöld á Mallorca gera ráð fyrir tíu milljón ferðamönnum þetta sumarið svo aðeins eitt dæmi sé tekið.







