Enn eitt flugfélagið sem bætist í hóp þeirra sem hingað fljúga í sumar er lettneska flugfélagið airBaltic en þar á bæ ætla menn að bjóða beint flug milli Keflavíkur og Ríga í júlí, ágúst og fram í september.

Beint flug til Ríga í Lettlandi síðar í sumar með airBaltic

Beint flug til Ríga í Lettlandi síðar í sumar með airBaltic

Eins og lesa má um í vegvísi okkar um Ríga þykir okkur töluvert til koma í borginni þeirri þó líka verði að færa til bókar að heimafólk fellur seint undir að vera elskulegt mikið samkvæmt okkar reynslu.

Fleiri flugfélög á klakann er besta mál í alla staði en í þessu tilfelli er eitthvað bogið við þennan pakka því allra lægsta fargjald fram og aftur án farangurs sem finnst við leit á vef airBaltic rúllar vel yfir 40 þúsund krónur og í 50 þúsund krónur hendi menn tösku með.

Það ekkert hræðilegt verð með venjulegu flugfélagi en airBaltic titlar sig sem lággjaldaflugfélag og við höfum þegar eitt slíkt sem flýgur til borgar ekki langt frá Ríga; Wow Air sem flýgur reglulega til Vilníus í Litháen. Með Wow Air kemst fólk fram og aftur án farangurs síðar í sumar niður undir 30 þúsund báðar leiðir.

Aukinheldur er hátt verðlag undarlegt sökum þess að þetta er ríkisflugfélag Lettlands og meðallaun fólks í því ágæta landi rétt slefa í 110 þúsund krónur á mánuði. Það kostar því hálf mánaðarlaun að skreppa til Íslands fyrir þarlenda. Galið verð.

Vefur airBaltic hér ef þú vilt kynna þér málið nánar.