Í Austurríki hugsa menn í lausnum. Alþjóðaflugvöllurinn í Vín hefur tekið í notkun tæki sem skima gesti fyrir Covid-19 vírusnum en niðurstöður fást á aðeins tveimur klukkustundum. Sé prófið neikvætt er frjáls för heimil án þess að gestir þurfi að fara í sóttkví.

Engin þörf á sóttkví ef ferðinni er heitið til Vínar.
Okkur vitandi fyrsti flugvöllurinn í Evrópu sem býður slíkt en víðast hvar annars staðar þurfa utanaðkomandi að fara rakleitt í fjórtán daga sóttkví við komu. Mínusinn er þó að prófið kostar tæpar 15 þúsund krónur en það lítill kostnaður samanborið við fjórtán daga hangs á hótelherbergi.
Stjórnvöld í Austurríki leyfa enn flugferðir til tiltekinna landa þar sem faraldurinn er í lágmarki. Landa eins og Portúgal, Katar, Búlgaríu, Hvíta-Rússlands, nokkurra flugvalla í Þýskalandi auk Íslands en Wizz air býður enn áætlunarflug milli Vínar og Keflavíkur. Kostnaður lágur og þar kominn möguleiki á utanlandsferð ef ferðaþyrstir geta ekki á sér heilum tekið.







