Eðlilegir vaxtaverkir eða hörmuleg þjónusta? Það er spurningin eftir páskavertíðina hjá Wow Air en flugfélagið fær góðan skammt af mykju og hrauni frá hinum og þessum einstaklingum á samfélagsmiðlum.

Allnokkrir aðilar furða sig mikið á að þjónustuver Wow Air hafi lokað eins og það lagði sig yfir páskana. Í heila fjóra daga gat enginn veitt farþegum eða viðskiptavinum flugfélagsins aðstoð sem á þurftu að halda eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti.custo1

Það engar nýjar fréttir að skorið sé við nögl í þjónustuverinu. Þar hefur verið yfirvinnubann lengur en hjá álverinu í Straumsvík eða frá því flugfélagið tók til starfa meira eða minna og fyrir klukkan átta um morguninn og eftir fimm síðdegis verða nauðstaddir að éta það sem úti frýs. Kannski slapp það þegar Wow Air var að fljúga til fimm, sex áfangastaða en nú þegar heimsyfirráð virðast á döfinni er það arfaléleg frammistaða.

Öllu verra en að svara ekki neyðarköllum og fyrirspurnum yfir páskana er að gleyma að færa bókun fólks til bókar eins og bandarísk hjón urðu fyrir eins og sjá má á næsta skjáskoti.custo2

Raunar er það ekkert minna en skelfilegt ef Wow Air leyfir milliliðum að selja flugmiða sína en það skilar sér ekki í bókunarkerfi flugfélagsins. Svo þarf skelfingu lostið fólkið sjálft að finna út úr hvað gerðist eftir að hafa tapað hundruð þúsunda króna!!!

Aftur arfaléleg þjónusta hjá Skúla Mogensen og hans fólki. Auðvelt að ímynda sér vonbrigðin og jafnvel heiftina sem getur gripið þegar fólk mætir á flugvöllinn yfir sig spennt yfir Íslandsferð sem tók mánuði að skipuleggja til þess að komast að því að þú ert ekki á skrá og ferð ekki fet. Computer says no.

Allir geta gortað af þjónustu enda það hugtak teygjanlegt í allar áttir eins og „strax“ hjá Framsóknarflokknum. En það er til önnur tegund af þjónustu: Góð þjónusta. Það merkir að einhver gerir meira en hann eða hún þarf til að koma til móts við viðskiptavin. Þú veist, þetta litla aukalega sem gleður oft meira en annað.custo3

Engu slíku var fyrir að fara þegar einstaklingur forvitnaðist um flug til Lyon tveimur dögum áður en ákveðið var að fjölga flugferðum þangað. Eins og sjá má var viðkomandi sagt að leita annað því ekki yrði um aukaflug að ræða. Viti menn! 48 stundum síðar er komið aukaflug.

Nú skal ekkert fullyrt en afar líklegt má telja að aukaflug hafi verið komið á dagskrá þegar viðkomandi forvitnaðist. Hefði verið of mikið púl fyrir þjónustuverið að kanna það fyrir manninn. Það er jú ekki eins og skitið aukaflug sé hernaðarleyndarmál?

Svo er það þetta sígilda að hafa sætaraðir þrengri en gallabuxur á Madonnu. Nú verður ritstjórn að viðurkenna að ekkert okkar höfum lent í níðþröngum sætum í flugi Wow Air. Þvert á móti höfum við ekkert undan plássleysi að kvarta. En ljóst má vera að einhverjar vélar Wow Air eru öðruvísi en hinar.custo4

Í það minnsta finna allnokkrir hjá sér þörf á því að senda flugfélaginu pillu vegna óvenjulegra þrenginga um borð eins og lesa má um á fjórða skjáskotinu hér til hliðar. Þar blæs Mummi nokkur meinhorn í lúðra og það gefur honum byr í seglin að undir þetta taka nokkrir aðrir á fésbókarvef Wow Air.

Að fólkið hafi virkilega fengið þá skýringu að „það eigi eftir að fækka um 20 sæti um borð“ er algjörlega arfaslök viðbrögð og á auðvitað ekkert skylt við þjónustu. Hvenær ætlar flugfélagið að senda vélina í sætaskiptin? Það er jú ekki eins og hver einasta vél flugfélagisns sé ekki í loftinu fimmtán til tuttugu stundir á sólarhring.

Kannski það séu skilaboðin frá nýjum stjórnarmanni Wow Air að slaufa allri þjónustu til að auka nú og flýta fyrir hugsanlegum arðgreiðslum. Stjórnarmaðurinn umræddi er nefninlega þekktur fyrir að hafa bryddað upp á mjög miður góðri þjónustu sem forstjóri bandaríska flugfélagsins Spirit Airlines. Það er velþekkt fyrir lakari þjónustu en gengur og gerist.