Það er svo merkilegt með „Sólarhrings Sólarsprett Plúsferða“ að það tilboð gildir mun lengur en sólarhring. Sem er annaðhvort merki um gleymsku Plúsfólks eða að sala er vel undir væntingum og því framlengt.
Þegar þetta er skrifað virðist enn nóg af lausum sætum í tilboðsferðir Plúsferða sem ferðaskrifstofan, í eigu Pálma Haraldssonar svindlara, hefur auglýst grimmt undanfarið. Enn hægt að bóka þó tíminn til þess á að hafa liðið í hádeginu í dag og ekki fæst séð að neinar tilboðsferðanna séu uppseldar eftir stikkprufur ritstjórnar.
Nú ætlum við að leyfa okkur að fullyrða að einhver krísa er hjá innlendum ferðaskrifstofuaðilum. Það dynja á okkur tilboðin og hafa gert nánast linnulaust frá áramótum. Enn er páskaútsala hjá Nazar þó reyndar nú heiti það aðeins útsala. Enn eru tilteknar tilboðsferðir hjá Úrval Útsýn á sértilboði og hafa verið vikum saman svo ekki sé minnst á bókunarafslátt sem í boði var fram til mars hjá Heimsferðum og Úrval Útsýn.
Kannski landinn sé loks að átta sig á því sem Fararheill hefur predikað um sjö ára skeið: Ferðir á eigin vegum spara tug- eða hundruð þúsunda fyrir fjölskyldur miðað við flestar pakkaferðir ferðaskrifstofanna. Og öll erum við meira og minna blönk fyrir utan bankafólk, tiltekna ráðherra og vini þeirra.








