Böns af flugfélögum að hefja flug til og frá farsæla Fróni eftir langt og leiðinlegt faraldursfrí. Sem er góð latína fyrir ferðaþyrsta en það er þó ekkert samasemmerki milli lands sem opnað hefur á flugsamgöngur og landa sem hafa opnað fyrir ferðamönnum.

Evrópa öll að opnast flugleiðis en kannski ekki fyrir ferðafólk. Mynd ESA
Okkur fannst sitthvað vanta í þær tugi fregna í íslenskum fjölmiðlum þess efnis að hin og þessi flugfélögin væru að taka við sér eftir Covid og áætlunarflug til og frá Íslandinu góða væri á dagskrá.
Þar vantar fyrst og fremst að gera greinarmun á þeim flugfélögum sem hingað munu fljúga, hvaðan þau koma, og hvort þau lönd séu opin ferðafólki möglunarlaust. Svo er nefninlega ekki alltaf.
Hér að neðan er listi yfir þau lönd sem eru OPIN FERÐAFÓLKI nú þegar vandræðalaust:
1) AUSTURRÍKI – Sjötíu prósent opið ferðafólki frá flestum löndum Evrópu að Íslandi meðtöldu. Mögulegt að fá skimun fyrir kóróna gegn gjaldi við komu en annars þarf að framvísa læknisvottorði um bullandi heilbrigði og það vottorð má ekki vera eldra en fjögurra daga. Ella er það 14 daga sóttkví.
2) KRÓATÍA – Þann 15. júní opnast Króatía eins og hún leggur sig eins og vorlaukur í sumarfríi. Engar takmarkanir á fólki frá Evrópu og engin krafa um sóttkví.
3) KÝPUR – Mánuður síðan Kýpverjar opnuðu eyjuna sína fyrir ferðafólki frá tilteknum vinalöndum en um miðjan júní á öllum takmörkunum að vera aflétt frá öllum Evrópuríkjum. Stjórnvöld lofa endurgreiðslu alls heilbrigðiskostnaðar ef ferðamenn veikjast þar í sumar.
4) DANMÖRK – Galopin Íslendingum en ekki mörgum öðrum og það er stórt catch. Engum ferðamanni heimilt að gista í Köben. Í góðu lagi samt að tjalda í Horsens.
5) EISTLAND – Tæknilega opið öllum en ef fólk kemur frá löndum með háa smittíðni þarf að dúlla sér á hótelherbergi í fjórtán daga áður en hægt er að skoða króka og kima.
6) ÞÝSKALAND – Fimmtándi júní er lykilorðið hér. Þann dag gera þýsk stjórnvöld ráð fyrir að opna vandræðalaust fyrir aðkomufólk frá evrópskum löndum þegar þetta er skrifað.
7) GRIKKLAND – Sama dagsetning hér og í Þýskalandi. Þann 15. júní geta erlendir ferðamenn heimsótt vandræðalaust. Þó með þeim formerkjum að stikkprufur verða gerðar á komugestum og þeir sem ekki standast prófið þurfa að sitja inni á herbergi að lágmarki sjö daga og hugsanlega 14.
8) ÍTALÍA – Opið upp á gátt nú þegar og ekkert vesen svo lengi sem fólk er frá Evrópulöndum.
9) MALTA – Á þessari Miðjarðarhafseyju eru allir velkomnir þann 1. júlí vandræðalaust.
10) SVARTFJALLALAND – Galopið nú þegar en þó aðeins ef gestir koma frá löndum þar sem tíðni smitaðra af kóróna er lægri en 25 af hverjum hundrað þúsund íbúum. Ísland sleppur.
11) HOLLAND – Opið hús hjá þeim appelsínugulu en þó aðeins frá löndum Evrópu.
12) SERBÍA – Partíið má hefjast í þessu ágæta landi. Allir velkomnir.
13) SLÓVAKÍA – Lok, lok og læs en allt í plati. Galopið hús fyrir Evrópubúa.
14) SPÁNN – Allir flugvellir og ferðamannastaðir opna þann 1. júlí. Ekkert ves.
15) SVISS – Fimmtándi júní er dagurinn. Þá opnast landamærin að Sviss fyrir öllum innan Evrópu.
16) PORTÚGAL – Allir velkomnir frá og með 15. júní.
* Öll þau Evrópulönd sem ekki eru á þessum lista eru annaðhvort alfarið lokuð ferðafólki ótímabundið eða heimsóknir heimilar gegn sóttkví í minnst 14 daga.







