Við hjá Fararheill veltum þeirri hugmynd fyrir okkur í gær hvort verið gæti að landinn sé kominn með nóg af Kanaríeyjum með tilliti til að minnst tvær ferðaskrifstofur bjóða nokkuð ítrekað ferðir þangað á tilboðsverði. Nú síðast Sumarferðir sem var með sértilboð til Tenerife fram til hádegis í dag. Ekki fæst séð að salan hafi gengið vonum framar.
Það byggjum við á bókunarvél ferðaskrifstofunnar en þar er gefið upp á öllum dagsetningum hvort lítið er eftir af sætum í hverja tiltekna ferð fyrir sig. Sú aðvörun kemur upp strax og sex sæti eða færri eru eftir.
Og skemmst er frá að segja að út frá þeirri viðmiðun er aðeins ein einasta af rúmlega 30 ferðum Sumarferða til Tenerife í sumar að verða uppseld þrátt fyrir tilboðsverð síðasta sólarhringinn.
Heldur virðist tilboð til Roquetas de Mar í Almería ekki hafa gengið sem skyldi því þangað er engin einasta ferð af tólf alls uppseld eða nálægt því þegar þetta er skrifað.
Hins vegar dvínar ekkert áhugi fólks á Alicante og Benídorm en töluvert er að fyllast af ferðum Sumarferða þangað sé mið tekið af sömu bókunarvél.






