Ameríkuflug Icelandair gengur eins og í of góðri sögu og nú hefur fyrirtækið gripið til þess ráðs til að anna aukinni eftirspurn frá Bandaríkjunum að bæta við reglulegu áætlunarflugi til Íslands frá Newark flugvelli í New Jersey. En um leið býður flugfélagið farþegum sínum upp á allra versta flugvöll í Bandaríkjunum.
Tilkynning þess efnis barst fjölmiðlum í dag og sem fyrr hjá metnaðarlausum íslenskum fjölmiðlum fauk sú tilkynning þráðbeint á vef miðlanna eins og um alvöru fregn væri að ræða.
Engum datt í hug að gera athugasemd við að það sem Icelandair segir í fyrirsögn vera flug til New York er ekki alls kostar rétt. Newark flugvöllur er innan marka New Jersey sem er annað bæjarfélag en New York.
Engum datt heldur í hug að minnast orði á að Newark flugvöllur hefur ítrekað og af ýmsum aðilum fengið hina vafasömu viðurkenningu; versti flugvöllur landsins. Er þó af nógu að taka í því stóra landi.
Flugvellir fá ekki slíkan stimpil fyrir ekki neitt. Í tilfelli Newark merkir þetta miklar tafir á lendingum og brottförum á annatímum, langan tíma farþega við öryggisleit, þægindi og úrval verslana og veitingastaða afar takmarkað og umferð til og frá flugvellinum.
Gildir einu hvar borið er niður. Frommers, Lonely Planet, MSNBC, CNN, Daily Beast, Department of Transportation eða Airports Council International. Newark flugvöllur er slæmur staður til að vera á.







