Svo virðist sem mýtan um að Íslendingum þyki ekkert betra á diskinn sinn en rammíslenskur matur eigi lítt við rök að styðjast þegar allt kemur til alls. Allavega ef marka má skoðun þátttakenda í síðustu könnun Fararheill.
Vildi ritstjórn vita hvers Íslendingar á ferðalögum erlendis söknuðu mest að heiman. Fjögur svör voru í boði; maturinn, veðrið, vatnið eða fjölskylda og vinir.
Skemmst er frá því að segja að langflestir, 44 prósent, söknuðu íslenska vatnsins. Næstflestir, 31 prósent, söknuðu veðurfarsins sem kemur nokkuð á óvart því það er oftar en ekki viðkvæði ferðalanga héðan að fara utan til að losna við rysjótt veðrið. Þar á eftir, 25 prósent, var söknuður eftir fjölskyldu og vinum.
Stóra fréttin er hins vegar líklega sú að ekki einn einasti þátttakandi, af 156 sem þátt tóku, bar við söknuði eftir íslenskum mat. En líklega hefur Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ekki tekið þátt að þessu sinni.
Hafa skal í huga að um vefkönnun er að ræða og niðurstöðurnar því vafasamari en ella. Þó gefa þær ákveðnar vísbendingar.






