Fyrr í þessum mánuði lauk fyrstu atkvæðagreiðslu um ný sjö náttúruleg undur veraldar en sérstök samtök halda utan um það kjör. Stendur til að kynna formlega niðurstöðu í byrjun næsta árs en sitt sýnist hverjum um þá sjö staði sem fengu flest atkvæðin í fyrstu umferðinni.
Mjög deildar skoðanir eru um þetta val en skipuleggjendur segja að það verði ekki lýðræðislegra því kosning fer fram á netinu og getur hver sem er með netaðgang tekið þátt. Á hinn bóginn eru líka milljarðar manna sem engan slíkan aðgang hafa og geta því ekki haft áhrif.
Önnur gagnrýni hefur snúist um að umræddir sjö staðir séu meira ferðamannaparadísir en stórkostleg undur og enn aðrir segja fráleitt að velja sjö fallegustu náttúrustaði heims þegar til eru milljónir slíkra staða. Ritstjórn Fararheill er á þeirri skoðun.
Í öllu falli þá eru þetta þeir sjö staðir sem nú koma til greina sem hin nýju náttúruundur heimsins í engri sérstakri röð.
- Amazon regnskógurinn
- Halong flóinn, Víetnam
- Iguazu fossarnir, Argentína og Brasilía
- Jeju eyja, Japan
- Kómódó eyja, Indónesíu
- Puerto Princesa áin, Filippseyjum
- Borðfjall, Suður Afríku
Sjá nánar á heimasíðu samtakanna hér.






