Og þú sem ætlaðir að hafa það kósí á ströndinni í Brighton. Sú von er líklegast úr sögunni því þær fregnir berast frá Bretaveldi að í kjölfar mikilla rigninga nánast í allt sumar hafi orðið sprenging í fjölgun moskítóflugna.

Votviðrasamt vor og sumar í Bretlandi hefur skapað kjöraðstæður fyrir skordýr á borð við moskítóflugur
Það vita þeir sem dvalið hafa í grennd við þann andskota um tíma að þær veigra engum og eru sennilegast einhver leiðinlegustu kvikindi sem hægt er að hitta fyrir.
Ekki aðeins eru moskítóflugurnar að fjölga sér heldur eru og kjöraðstæður fyrir flær í kjölfar slíkra rigninga og segir frá því í breskum blöðum að snöggtum fleiri sæki sér nú læknishjálp vegna skordýrabits en gerist venjulega og lyfsalar segja 150 prósenta aukningu í sölu á skordýrasmyrslum.






