Tíðindi

Milljónir til Rómar í maí

  02/02/2011mars 19th, 2023No Comments

Þann 1. maí næstkomandi hyggst Benedikt páfi færa forvera sinn, hinn vinsæla Jóhannes Pál páfa, í dýrlingatölu en sá viðburður er stór og mikilvægur fyrir kaþólikka og reyndar aðra trúaða menn.

Þess vegna er vænlegast að panta flug og gistingu eigi síðar en núna hafi fólk hug á að fylgjast með þeim viðburði en sérstök dýrlingamessa verður haldin af þessu tilefni og er búist við að hundruðir þúsunda, ef ekki milljónir, muni fylgjast með þeirri messu á Péturstorginu þar sem páfi messar venjulega.

Heimasíða Vatíkansins þar sem finna má allar upplýsingar um viðburðinn þegar nær dregur hér.