Einkar skemmtilegt að fylgjast með fésbókarvef flaggflugfélags Íslands þessar vikur og mánuði. Þar er barasta nánast ekkert í lagi og níu af hverjum tíu kommentum eru neikvæð.

Töluvert fleiri kvarta en ekki á fésbókarvef Icelandair þessi misserin. Mynd Woodys Aeroimages

Töluvert fleiri kvarta en ekki á fésbókarvef Icelandair þessi misserin. Mynd Woodys Aeroimages

Útlendingar eru búnir að fatta að opinber fésbókarkomment eru líklegri til að vekja skjót viðbrögð hjá flugfélaginu en að skrifa einhver einkaskilaboð eins og flugfélagið fer fram á við þá sem eru ósáttir við þjónustuna. Með því að skrifa opinbert geta miðlar á borð við Fararheill og allir aðrir sem hafa hugsað sér að fljúga með flugfélaginu metið hversu léleg, eða góð, þjónustan er, og tekið upplýstar ákvarðanir um viðskipti.

Athygli ritstjórnar var vakin fyrir skömmu þegar Icelandair réði sérstakan þjónustufulltrúa fyrir hótel sín hérlendis. Það gott og blessað en hefði ekki verið betri kostur að ráða nokkra í þjónustudeild flugfélagsins þar sem mánaðarbið og gott betur er nú raunin? Það er jú engin þjónusta að láta fólk bíða vikum saman eftir svörum við vandamálum.

Í öllu falli er staðan 9-1 vandamálum í vil síðustu 48 tíma sé fésbókarvefur Icelandair skoðaður þegar þetta er skrifað. Og seint fer 90 prósent óánægja í bækur sem góður árangur. En hluthafar brosa út í eitt enda flugfélagið nánast að framleiða peninga þessa síðustu og verstu og það mikið til á kostnað íslenskrar náttúru sem þarf ár og áratugi til að ná sér eftir átroðning milljóna ferðamanna.

♥ Þau níu neikvæðu:

ice1

ice2

ice3

ice4

ice5

ice6

ice7

ice8

ice9

♥ Þessi eina jákvæða:

ice10