Bandaríska flugfélagið Southwest er jafnan eitt þarlendra flugfélaga sem hagstæðasta verðið bjóða og merkilegt nokk fylgir taska frítt með. Flugfélagið er nú að henda út dúndurtilboðum á völdum ferðum frá hausti og fram að áramótum.

Kjöraðstæður til að flakka um Bandaríkin fyrir lítið. Mynd John Rogers
Þar má meðal annars finna flug aðra leið frá Washington til Chicago niður í tólf þúsund krónur. Flug frá Fort Lauderdale alla leið til Las Vegas niður í sautján þúsund kall og frá Portland er hægt að fljúga með Southwest til Oakland/San Francisco fyrir níu þúsund krónur. Það síðastnefnda svona helmingi lægra verð en lægst finnst almennt á þeirri leið.
Óhætt að hafa í huga að héðan frá Íslandi er flogið til Orlando sem er skammt frá Fort Lauderdale, til Washington er komist með bæði Icelandair og Wow Air og Icelandair býður beint flug til Portland. Þetta er þó aðeins brot af því sem Southwest er að bjóða.
Það gerist ekki billegra en það flugið vestanhafs og sjálfsagt að skoða langi fólk á flakk utan þeirra staða sem flogið er til héðan. Meira hér.







