Með tilliti til ítrekaðra kvartana flugfélagsins Icelandair síðasta árið eða svo um hversu illa sé gengið að fyrirtækinu með auknum sköttum og gjöldum sýnir félagið engu að síður mesta hagnað sinn frá upphafi á síðasta ári samkvæmt ársreikningum móðurfélagsins Icelandair Group. Nam hann 4,6 milljörðum í plús.
Skemmst er að minnast mikilla áhyggja Icelandair og annarra ferðaþjónustuaðila í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli í fyrra þegar forstjóri félagsins ítrekaði nauðsyn þess að ríkið hrinti af stað mikilli landkynningarherferð til að rétta hlut ferðaþjónustuaðila.
Átakið Inspired by Iceland var sett á stofn í kjölfarið og fóru í það 800 milljónir króna. Strax um sumarið var fjöldi ferðamanna hingað til lands orðinn meiri en nokkru sinni.
Var síðasta ár algjört metár í ferðaþjónustunni og stærsta ástæðan eldgosið í Eyjafjallajökli. Ekki hefur komið til tals að ferðaþjónustan endurgreiði ríkinu nú og reyndar er deilt um hvort umrætt átak, Inspired by Iceland, hafði einhver úrslitaáhrif.
Í haust fór framkvæmdastjóri Icelandair hörðum orðum um áform ríkisstjórnarinnar að hækka enn frekar skatta og gjöld á ferðaþjónustuna. Gekk hann svo langt að segja að áformin gætu þýtt að flugfélagið yrði að hætta við áætlanir um mikla fjölgun áfangastaða í ár. Ekki kom til þess en fjöldi ferðamanna til landsins fyrstu mánuði þessa árs hefur sjaldan verið meiri.
Í byrjun febrúar í ár sagði sami framkvæmdastjóri, Birkir Hólm Guðnason, að ríkið þyrfti aftur að koma með duglegum hætti að Íslandskynningu. Ekki væri nóg að Icelandair eitt og sér sæi um alla landkynningu. Þar gleymir Birkir væntanlega andstæðingi sínum Iceland Express sem einnig stendur í kynningarherferðum sem og aðrir aðilar sem selja ferðir hingað til lands.
Ekki má heldur gleyma aðvörunum framkvæmdastjórans í lok febrúar um afleiðingar mikillar hækkunar á eldsneytisverði. Ljóst væri að þörf væri á miklum hækkunum á fargjöldum.
Hækkanir hafa samt orðið verulegar hjá flugfélaginu og margir eru sammála um að verðlag á utanlandsferðum með Icelandair sé farið að minna á þegar fyrirtækið var einrátt á markaðnum hér í byrjun aldarinnar og smurði vel ofan á fargjöldin.
Færi betur í þessu árferði að Icelandair lækkaði fargjöld sín meðan lægð er almennt hjá landsmönnum og biði með að safna stórgróða þangað til betur árar.






