Tíðindi

Skýrari verða skilaboðin ekki

  19/03/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Skilaboðin verða vart mikið skýrari! Skoðanakönnun Fararheill.is leiðir í ljós að yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda telur að verðlagning íslenskra ferðaskrifstofa sé út í Hróa hött. 92 prósent af þeim 416 einstaklingum sem þátt tóku eru á þeirri skoðun meðan einungis átta prósent segja verðlagninguna eðlilega miðað við allt og allt.

Vill ritstjórn þakka kærlega fyrir góða þátttöku og þótt ekki séu um vísindalega könnun að ræða þá gefur þetta sterkar vísbendingar um hug fólks.

Er þetta í takti við tilfinningu ritstjórnar að almenningi þyki almennt mjög dýrt að fara erlendis með íslensku ferðaskrifstofunum. Allur samanburður við ferðaskrifstofur í nágrannalöndunum leiðir líka fljótt í ljós að álagning er töluvert hærri en þar á sambærilegum ferðum.

Þá vita lesendur Fararheill einnig að hótelverð þau er ferðaskrifstofurnar íslensku bjóða víða eru töluvert dýrari en fá má með því einu að bóka hótelið sjálf.