Tíðindi

Metfjöldi til Parísar

  29/08/2011desember 16th, 2013No Comments

Það renna ítrekað á mann tvær grímur Thomsens um svokallaða efnahagslægð í heiminum þegar vikulega berast fregnir af metfjölda ferðamanna hingað og þangað.

París vinsæl sem aldrei fyrr en restin af Frakklandi heillar færri og færri

Ekki er langt síðar Fararheill.is greindi frá metaðsókn til New York og Flórída. Og nú hefur metfjöldi ferðamanna sótt París heim í sumar.

Þessu skýrir ferðamálaráð Parísarborgar frá og það staðfestir ráðgjafastofan Protourisme.

Fyrstu sex mánuði ársins sóttu 7,7 milljónir ferðamanna París heim og brúkuðu 78 prósent alls hótelrýmis í borginni en slíkar tölur hefur enginn séð um tíu ára skeið.

Frakkland er vinsælasta ferðamannaland heims og hefur verið lengi en París er þó eini staðurinn fram til júlí sem mælist með aukningu.

Annars staðar í landinu fækkar ferðafólki en skýringar á því liggja ekki á lausu.

Bæði Iceland Express og Icelandair fljúga til Parísar