Kannski óvitlaust fyrir Neytendastofu að fara að gera úttekt á verðlagi í Leifsstöð. Ýmislegt bendir til að þar sé verið að svindla á neytendum út í eitt.
Fararheill hefur nokkrum sinnum áður bent fólki á að verðlag í Leifsstöð, þar sem vörur eru seldar án allra skatta og opinberra gjalda, er fjarri því „allt að 50% lægra“ en annars staðar eins og Isavía auglýsir blygðunarlaust. Við finnum reyndar alls engar vörur í Leifsstöð sem komast nálægt því að vera HELMINGI ódýrari en á Laugavegi eða í Smáralind. Enn ein ástæða fyrir að yfirmenn Isavía eiga að taka pokann sinn og skammast sín en líkurnar á því engar auðvitað.
Að þessu sinni rákumst við á auglýsingu frá Elko á vef Leifsstöðvar. Auglýsingin, eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti, sýnir vinsæla matvinnsluvél og „tax-free“ verðið á vélinni 13.499 krónur.
Væri allt eðlilegt ætti slík vél að kosta að minnsta kosti 20 þúsund krónur annars staðar enda greiðir Elko engin gjöld eða skatta af sölu í Leifsstöð. En hvað kemur í ljós þegar við kíkjum á hefðbundinn vef Elko?

Hefðbundið verð á Nutribullet mixara í Elko er 14.990 krónur með sköttum, gjöldum og tollum. Skjáskot
Eins og sjá má kostar sama matvinnsluvél heilar 14.995 krónur almennt hjá Elko.
Sem er dálítið undarlegt því í Leifsstöð greiðir Elko hvorki skatta né gjöld af þessari vél. Bara virðisaukaskatturinn einn og sér er 24% og ef við mínusum hann frá verðinu í hefðbundnum Elko-verslunum þá ætti þessi vara að kosta 11.396 krónur í Leifsstöð. En hún kostar 13.499 krónur!!!
Þá vantar inn í aðflutningsgjöld og guð má vita hvaða aðra skatta Bjarni Ben leggur á innfluttar vörur framleiddar í Kína og seldar sem bandarískar. En til samanburðar fæst sama Nutribullet vélin úr verslun í Svíþjóð, með þarlendum sköttum og gjöldum, niður í tólf þúsund krónur svo eitt dæmi sé tekið. Fer Svíþjóð þó seint í bækur sem sérstaklega ódýr áfangastaður.
Það er sem sagt ódýrara að kaupa Nutribullet úti á götu í Gautaborg, Kalmar eða Stokkhólmi en í Elko í Leifsstöð.
Ruglið ætlar aldrei að taka enda…







