Milljarðar króna í arðgreiðslur ár hvert hjá fyrirtæki sem er á lífi þökk sé lífeyrissjóðum landsmanna. Fyrirtæki sem þrátt fyrir það hefur sjaldan boðið innlendingum lág fargjöld eitt né neitt og breytti lítt afar feitu eldsneytisálagi á farmiða þó eldsneytisverð félli um tvo þriðju.

Ímyndarauglýsingar út í eitt en Icelandair hefur lengi troðið á neytendum og eigin starfsfólki. Mynd Ozzy Delaney

Þetta eru allt ágætar ástæður til að sniðganga Icelandair að okkar mati fyrir utan þá staðreynd að forstjóri samsteypunnar vill ekki fyrir nokkra muni að landsmenn fái mannsæmandi laun.

En sért þú enn ekki sannfærð/-ur er komin ein góð ástæða til.

Icelandair greiðir fólkinu á gólfinu hörmuleg laun sé mið tekið af stöðu fyrirtækisins samkvæmt lista Fyrirmyndarfyrirtækja VR*. Af 80 stærri fyrirtækjum landsins fær EKKERT lægri einkunn fyrir launakjör en risafyrirtækið Icelandair. Flugfélagið fær meðaleinkunnina 2.17 þegar meðaltalið hjá stærri fyrirtækjum landsins er 3.28.

Jú, víst eru margir að störfum hjá Icelandair sem gæti skýrt að hluta þessa hörmulegu niðurstöðu og ekki svöruðu allir starfsmenn fyrirtækisins umræddri könnun. En fyrirtækið er þó líklega að greiða eins lág laun almennt og framast er unnt til að forstjórinn og stjórnin geti brosað breiðar á hluthafafundum og fengið klapp á bakið frá stórvesírum. Því ekki skilar það sér í lágum flugfargjöldum.

Íslenskur almenningur ætti að okkar mati að snúa viðskiptum sínum annað. Þetta fyrirtæki er alls ekki að sýna okkur lit í einu né neinu.

* Fyrirmyndarfyrirtækjakönnun VR gerir könnun á því meðal starfsmanna fyrirtækja landsins hversu gott sé að vinna hjá viðkomandi aðila og tekur könnunin til ýmissa þátta, þar á meðal launakjara.