
Dapurt prógramm til London.
Ferðir til Bretlands ekki ýkja spennandi þessi dægrin. Stígðu fæti á þær grundirnar og þér rakleitt fylgt umsvifalaust í rándýra sóttkví í nokkra daga eða vikur eftir atvikum. Þetta vonandi lagast aðeins þegar fram líða stundir en best að taka ferðatryggingu svona á meðan staðan er svona.
Við kíktum á lægstu fargjöld Icelandair til London á fjórum handahófskenndum dagsetningum júní, júlí, ágúst og september og bárum saman við lægstu fargjöld British Airways. BA að öllu leyti sambærilegt við Icelandair því hvorugt flugfélag keyrir á lágfargjaldamódelinu og bæði bjóða umtalsvert meiri þjónustu sé þess óskað eða greitt fyrir.
Illu heilli fyrir snillingana hjá Icelandair kemur í ljós að British Airways býður lægri fargjöld í þremur af þeim fjórum tilfellum sem við skoðuðum. Um er að ræða allra lægsta fargjald fram og aftur:
24.-27. júní: Icelandair heimtar 34.055 krónur meðan British Airways tekur 35.045 krónur. Mismunur Icelandair í vil um 990 krónur.
13.-22. júlí: Icelandair vill að þú pungir út 36.045 krónum en British Airways býður túrinn á 28.245 krónur. Mismunur BA í vil um 7.800 krónur.
3.-12. ágúst: Farmiðinn með Icelandair kostar lægst 32.245 krónur. BA býður sama pakkann á 30.045 krónur. Mismunur BA í vil um 2.200 krónur.
1.-9. september: Fram og aftur lægst með Icelandair kostar manninn 24.045 krónur. BA býður best 22.445 krónur. Mismunur BA í vil 1.600 krónur.
Hversu dapurt að flaggflugfélag Breta skuli bjóða Íslendingum betri kjör á flugi en flaggflugfélag Íslands…
* Leitað samtímis hjá báðum aðilum miðjan dag 24. apríl 2021. Hafið hugfast að flugfargjöld breytast ört. Um handahófskenndar dagsetningar að ræða. Ekki er útilokað að Icelandair bjóði betrí díla á öðrum dagsetningum.







