Í slenskar eftirlitsstofnanir eru svo illa farnar að hending er ef eitthvað bitastætt kemur þaðan. Síðasta dæmið er Neytendastofa sem ekki hefur hugmynd um að Icelandair brýtur lög nánast að gamni sínu og hefur gert um nokkurra mánaða skeið.

Lögbrotið má sjá á skjáskotinu hér til hliðar. Þar stendur „Vegna tíðra breytinga á flugáætlun, vetum við ekki tryggt að uppgefið verð sé rétt.” Forfarandi er smáa letrið undir öllum auglýstum fargjöldum flugfélagsins.

Dabbadona og Maradona líka!

Það skýrt og skorinort í neytendalögum að uppgefið verð á vöru skal „vera rétt og endanlegt.” Þó Icelandair hafi fengið fimm milljarða gefins frá ríkinu síðustu misserin merkir það ekki frítt spil frá lögum og reglum landsins. Það ekki hægt að auglýsa eitthvað og svo þegar fólk mætir á staðinn er verðið eitthvað allt annað og yfirleitt verra. Sem er ástæða þess að Fararheill auglýsir ekki þriggja vikna ferðir til Kanarí á 48 þúsund á kjaft sem dæmi.

Bentum Neytendastofu, sem er sú stofnun sem á að gæta hagsmuna neytenda, á þetta fyrirbrigði og stofnunin kom af fjöllum. Rannsókn hafin en Icelandair hefur stundað þetta um margra mánaða skeið. Allt bendir til að Neytendastofa sé eins og MAST og Fiskistofa þar sem eftirlit er í mýflugumynd og menn og dýr gjalda þess fyrir vikið. En prófaðu svo að stela agúrku úr Nettó og sex lögreglubílar og sérsveitin er kölluð til.

Allt ósköp eðlilegt (ef þetta væri bananalýðveldi…)