Allir þeir sem láta sig dreyma um sólarferðir til Spánar næsta sumarið ættu sannarlega að eyða stundarkorni og gera verðsamanburð á skipulögðum ferðum héðan. Nokkur verðmunur getur verið á sams konar ferð hjá mismunandi ferðaskrifstofum.

Hver stendur uppi sem sigurvegari í þetta skiptið?

Hver stendur uppi sem sigurvegari í þetta skiptið?

Lesendur okkar vita að við framkvæmum reglulega verðkannanir bæði hjá flugfélögunum og ferðaskrifstofunum til að þú getir ferðast á sem ódýrastan hátt.

Sú framkvæmd verður einfaldari með hverju árinu því samkrull ferðaskrifstofa hérlendis færist í vöxt og allra mest hjá þeim tveimur stóru: Úrval Útsýn og Heimsferðum. Annars staðar í veröldinni gæti einhver opinber aðili gert athugasemdir við slíkt en sem fyrr er engu slíku fyrir að fara hérlendis.

Dæmi um samkrullið má finna hér að neðan en við könnuðum verðmun á sams konar ferðum þessara tveggja aðila til Tenerife, Almeria og Albir næsta sumarið. Ekki einungis eru þessir aðilar að bjóða ferðir til sömu staða að mestu leyti heldur bjóða báðir oft sömu dagsetningar og jafnvel sömu hótel líka. Sömu dagsetningar helgast af því að Úrval Útsýn, sem á að heita aðal samkeppnisaðili Heimsferða, er aðallega að bjóða flug með Primera Air sem er í eigu sömu aðila og reka Heimsferðir.

Furðu mikill verðmunur reynist vera á þeim ferðum sem við litum á. Heimsferðir eru að bjóða betur í öllum tilfellum sem á ekki að koma á óvart. Enginn yfirmaður Primera er að selja ferðir til Úrval Útsýn á lægra verði en til dótturfyrirtækisins Heimsferða. En hve mikill munurinn er kemur kannski einhverjum spænskt fyrir sjónir.

Í fyrsta dæminu er jafnteflisyfirbragð yfir hlutunum. Þar er um að ræða vikuferð fyrir tvo fullorðna og tvö börn til Albir á Spáni þann 5. júní til 12. júní. Gisting með hálfu fæði á fjögurra stjörnu Hotel Kaktus í báðum tilvikum og flugið með Primera á sömu dagsetningum. Heildarverð hjá Úrval Útsýn alls 467.735 krónur en hjá Heimsferðum alls 465.900 krónur. Verðmunurinn á nákvæmlega sama pakka: 1.835 krónur.

Í næsta dæmi langar okkur að skjótast í tvær vikur til Almeria á suðurströnd Spánar. Nánar tiltekið til Roquetas de Mar og við erum aðeins tvö hjónaleysin og ætlum að dúllast í tvær vikur frá 30. júní til 14. júlí. Fjögurra stjörnu Playa Capricho er í boði hjá Heimsferðum með hálfu fæði fyrir okkur tvö fyrir alls 349.800 krónur. Það hótel ekki í boði hjá Úrval Útsýn en fjögurra stjörnu Hotel Neptun með hálfu fæði í sams konar herbergi kostar okkur 389.832 krónur. Verðmunurinn á nokkurn veginn sama pakka: 40.032 krónur.

Þriðja ferðin okkar er til Tenerife og aftur ætlum við bara tvö. Tvær vikur takk og við veljum fjögurra stjörnu Hotel Bitacora með hálfu fæði 25. júlí til 8. ágúst. Það kostar parið alls 459.800 krónur gegnum Heimsferðir. Nú er ekki sömu dagsetningar í boði hjá Úrval Útsýn. Við ferðumst því aðeins fyrr, 22. júlí til 5.ágúst, en ferðin að öðru leyti eins. Kostnaðurinn í heildina með þeim alls 486.428 krónur. Verðmunurinn á nokkurn veginn sama pakka: 26.628 krónur.

Í þessum dæmum reynist munurinn ekki vera stórar upphæðir en það er ástæðulaust að eyða aukalega fyrir sömu eða sams konar vöru og hvern þarna úti munar ekki um eins og einn 40 þúsund kall?