Samkvæmt erlendum könnunum býr ótti í okkur velflestum gagnvart flugferðum jafnvel þó margir neiti því fram í rauðan dauðann. Sýndi enda nýleg vefkönnun Fararheill.is að eitthver óþægilegasta upplifun hvers og eins er mikil ókyrrð í flugi.
En Andri Freyr Viðarsson, dagskrárgerðarmaður á Rás 2, hefur annars konar ótta. Hann getur ekki farið á klósett um borð í millilandaþotum án þess að fá á tilfinninguna að nú muni vélin hrapa og eftirmælin verði þau ein að hann hafi verið maðurinn á klósettinu. Tjáði Andri sig um þetta í þættinum Virkir morgnar.
Sem er kannski eðlilegt. Það eru jú nógu slæm örlög að láta lífið í flugslysi en líklega er aðeins verra að finnast með allt niðrum sig í þokkabót.






