Tíðindi

Að reykja eða ekki að reykja

  13/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Að líkindum kemur það einhverjum öðrum en ritstjórn Fararheill.is á óvart að samkvæmt vefkönnun eru álíka margir sem vilja leyfa reykingar á ákveðnum stöðum í flugstöðvum og vilja leggja blátt bann við öllu slíku.

Kannaði Fararheill hug lesenda sinna til þess að leyfa áfram reykingar í flugstöðvum en töluverð umræða er um þetta nú sem fyrr víða um heim. Hefur það meira að segja komið inn á borð Evrópusambandsins að slaka á reglum varðandi bann sökum þess að hópar af púandi reykingafólki fyrir utan allar flugstöðvar þykir engu meira spennandi en að hafa fólkið á ákveðnum reykingasvæðum innan flugstöðvanna.

Þátt tóku 308 aðilar að þessu sinni og féllu atkvæði tiltölulega jafnt.

Af þeim kusu vildu 49 prósent, 153 aðilar, að blátt bann yrði lagt við öllum reykingum í öllum flugstöðvum heims. Tíu færri, 46 prósent, vildu leyfa reykingar á afmörkuðum stöðum innan flugstöðvarbygginga. Fimm prósent svarenda var nokk sama til eða frá.