Tíðindi

Margir hafa ekki efni að ferðast þetta árið

  09/01/2011september 30th, 2014No Comments

Hartnær 30 prósent þeirra 544 sem þátt tóku í síðustu könnun Fararheill.is ætla ekki í ferðalag erlendis á nýju ári sökum blankheita.

Það verður að teljast afar stór hluti því lesendur vefsins eru undantekningarlítið sýktir af ferðabakteríunni og alla jafna láta sér ekki nægja að ferðast um í huganum.

Hvort niðurstöðurnar segja eitthvað um raunverulega stöðu heimila landsins skal ósagt látið en 64,1 prósent svarenda ætla í ferðalag einu sinni á árinu meðan átta prósent ætla að reyna að fara oftar en einu sinni.

Ritstjórn Fararheill.is þakkar kærlega fyrir þátttökuna og bendir á að ný könnun er komin á vefinn.