Bandaríska flugfélagið Delta Airlines kemur vart til með að bæta hag ferðaþyrstra Íslendinga ef marka má úttekt ritstjórnar Fararheill.is en flugfélagið hefur áætlunarferðir hingað frá New York í sumar. Reynist verðlag með Delta frá Keflavík og til Bandaríkjanna töluvert dýrara en hjá Icelandair og Iceland Express.
Dæmið snýst reyndar við sé flogið frá New York til Íslands en þá finnast hagstæðari fargjöld með Delta en hjá þeim íslensku.
Fargjald frá Keflavík til New York milli 4. júlí og 12. júlí er langhæst hjá Delta en ódýrast bjóða þeir slíkt fram og til baka á 97.960 krónur. Fargjald sömu daga hjá Icelandair fæst á 67.260 krónur og á 67.660 hjá Iceland Express. Munar þar litlum 30.700 krónum og vekur athygli að liðurinn skattar og önnur gjöld nema rúmum 30 þúsundum hjá Delta en I
Delta skýtur þó flugfélögunum íslensku ref fyrir rass sé flogið frá New York milli 4. júlí og 10. júlí. Býður Delta farið fram og til baka á 65.155 krónur. Icelandair sömu daga býður best 84.460 krónur en hagstæðast með Iceland Express er á 67.660 krónur. Hafa ber í huga að Delta og Icelandair fljúga frá JFK flugvellinum meðan Iceland Express notast við Newark flugvöll.






