Seint verður sagt að lýðræðið sé hornsteinn í Tælandi enda ríkir þar kóngur með spes þarfir og hans orð lög. En í þessu glæsilega landi þar sem ferðamennska nemur heilum 18 prósentum af vergri þjóðarframleiðslu árlega hafa stjórnvöld nú lokað fjölda vinsælla áfangastaða vegna ágangs erlendra ferðamanna.

Fjölmargar eyjur undan ströndum Tælands eru ekkert minna en fimm stjörnu í náttúrlegu tilliti. Og það vita heimamenn sem hafa nú lokað þeim mörgum.
Ekkert vandamál á Íslandi að kúkur og piss frá hótelum mengi umhverfið við Mývatn. Ekkert vandamál að stígurinn kringum Seljalandsfoss sé moldarflagð og drulla allt árið um kring. Ekkert að því að trufla fuglalífið í Dyrhólaey með þyrlum og drónum í tonnatali. Svo ekki sé minnst á að leigja útlendingum fjallajeppa gegn framvísun bókasafnsskírteinis. Það er jú ekki eins og stjórnvöld fari að loka fyrir túristakranann sísona.
Í Tælandi er þó til hugsandi fólk sem sér lengra en nefið á sér. Annað árið í röð hafa ferðamálayfirvöld í landinu lokað tugum vinsælla eyja vegna ágengi og ólíkt banninu 2016, sem varði í þrjá mánuði skal bannið nú vara í rúma fimm mánuði eða fram til október.
Þetta merkir að margar þessar stórkostlegu eyjar sem þú sérð þegar þú gúgglar Tæland verða lokaðar næstu fimm mánuði. Slæmt fyrir þig ef þú varst að bóka túr til Tælands en jákvætt fyrir náttúru og dýralíf þessara mögnuðu eyja sem finnast víða undan ströndum landsins.
Hugsandi stjórnvöld öfugt við það sem við búum við á klakanum hér nyðra…
PS: Átján prósent af landsframleiðslu hljómar ekki mikið. En settu það í samhengi við að ferðamennska á Íslandi árið 2015 nam 5 prósentum af landsframleiðslu.







