Stórfrétt DV í dag þess efnis að þjónusta Wow Air Skúla Mogensen sé fyrir neðan lélegar hellur BM Vallá.

Skúli Mogensen með aðdáanda. Mynd Wow Air
Gott og blessað að einhver stór fjölmiðill sýni því áhuga að taka stöðu með NEYTENDUM í landinu með þessum hætti því oftar en ekki er helsta efni fjölmiðla um Wow Air hvaða gellu forstjórinn er að deita í það og það skiptið.
En blaðamenn DV hefðu aðeins þurft að fletta upp Fararheill.is til að finna mýmörg dæmi síðastliðin fjögur ár um hörmungarþjónustu þessa annars ágæta flugfélags. Svo mikil er hörmungin að samkvæmt einkunnavef Skytrax, sem er einn þekktasti einkunnamiðillinn í fluginu, hefur Wow Air fallið úr sex í einkunn að meðaltali niður í fjóra á aðeins tveimur árum.
Til marks um hversu gott er að hafa fjórar stjörnur á þeim bænum ætti að nægja að benda hugsandi lesendum á að hið „illræmda“ Iceland Express sem fékk feitt á baukinn í fjölmörgum fjölmiðlum á sínum tíma var með þrjár stjörnur hjá Skytrax. Wow Air því á nippinu að falla niður í þann skítahaug.
Svo dirfist Mogensen að kalla þetta flugfélag fólksins!







