Það er ekki ýkja margt neikvætt við Grikkland. Reyndar alls ekki neitt nema ef vera skyldi að fjöldi ferðamanna er helst til mikill á þeirra vinsælustu stöðum sem þykir mínus í augum sumra. Það er ekki áberandi vandamál í Chalkidiki.

Grikkir sjálfir tala um að strendur Chalkidiki séu þær fallegustu í landinu og er þó af nógu að taka. Mynd Visit Greece
Það eru sterkar líkur á að þú hafir ekki heyrt talað um Chalkidiki eða Halkidiki eins og svæðið er einnig kallað sem er hluti hins sérstaka þriggja leggja skaga í austanverðu landinu. Svæðið líklega þekktast fyrir Athos fjallið helga sem er eina svæðið í veröldinni þar sem munkar ráða ríkjum. Fyrir utan auðvitað að atburðir úr grískri goðafræði tengist þessum stað verulega.
Nú er ferðadeild British Airways að bjóða sjö nátta ferðapakka á þessar slóðir og allra lægsta verð er í boði í þeim ágæta mánuði október um svipað leyti og kuldi og trekkur gera vart við sig hérlendis. Sérdeilis fínn tími til að lengja aðeins í notalegheitum sumarsins að okkar mati.
Enn betra er að þessar ferðir eru 30 prósent ódýrari en aðrar ferðir hingað um svipað leyti og þó flugið sé frá Gatwick í London er auðvelt fyrir okkur Frónbúa að komast þangað og það nokkuð ódýrt líka. Þegar þetta er skrifað er hægt að fljúga fram og aftur með Wow Air allt niður í 33 þúsund krónur. Þá á aðeins eftir að greiða fyrir ferð BA sem kostar röskar 80 þúsund krónur.
Þar er gisting á glæsilegu fimm stjörnu hóteli og morgunverður og kvöldverður fylgir með. Fyrir þá sem elska fjárhættuspil fylgir einnig með 100 punda inneign sem hægt er að eyða á staðnum ef svo ber undir.
Þannig má njóta lífs á besta stað í fremur klénum mánuði ársins fyrir alls 110 þúsund krónur á mann og það við lúxusaðstæður fyrir utan yndislega gríska náttúruna. Það gæti verið verra.







