U m 30 ára skeið hefur stór partur gamla borgarhluta Liverpool haft blessun heimsminjastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem mikill og merkilegur staður í mannkynssögunni. En ekki lengur.

Albertshöfn í Liverpool er kjaftfull af eldgömlum húsum og minjum en borgaryfirvöld hafa kosið að henda þessu gamla á haugana fyrir nýtt og betra. Þess vegna missir borgin heimsminjaskrárstimpilinn.

Fyrir marga er heimsminjaskrá SÞ, Unesco, ekki mikið að gera sig. Bara enn ein alþjóðastofnunin að gera sig breiða með lítilli innistæðu.

Hvort sem það er rétt eður ei þá er það staðreynd að stimpill stofnunarinnar fjölgar ferðamönnum til tiltekinna staða um fleiri hundruð prósent í kjölfarið samkvæmt allmörgum rannsóknum. Ástæðan kannski ekki síst sú að fréttatilkynningar Unesco eru undantekningarlítið birtar í helstu fjölmiðlum heims og ekki síður sú staðreynd að Unesco leitast við að þeim stöðum sem verðlaunin hljóta sé viðhaldið á tilhlýðilegan hátt. Með öðrum orðum þá þurfa staðir á heimsminjaskrá að vernda og viðhalda stöðum sínum til að halda nafnbótinni. Þar með talið að takmarka aðgang ef túrisminn fer yfir um.

Borgaryfirvöld í Liverpool hafa undanfarið ár fengið allmargar aðvaranir frá Unesco vegna skipulagsbreytinga í gamla borgarhlutanum en hirt lítið um. Þar hafa risið og eru að rísa nýtískulegar byggingar og hugmyndin sérstaklega að færa hafnarhlutann til nýrri tíma. Barir og veitingastaðir í nýstárlegum byggingum eiga að fylla allt af fólki og gera allt gott.

Nýr knattspyrnuvöllur Everton er meðal þess sem rísa skal á hafnarsvæði Liverpool á næstunni. Skjáskot

Fjarska eðlileg pæling hjá borgaryfirvöldum að kveikja líf í eldri og niðurníddum hverfum en það er á kostnað sögunnar þegar mörg hundruð ára gömlum byggingum er hent á haugana fyrir fansísmansí glerhýsi. Og í ljósi sögunnar er, fyrir utan Bítlana, eina heimting Liverpool á sínum stað í sögulegu samhengi sú staðreynd að þetta var ein allra helsta höfn landsins þegar Bretar réðu næstum helmingi heimsins og sendu reglulega heim allar helstu gersemar annarra landa.

Með tilliti til að Bretar fóru ráns- og morðhendi um flestar sínar nýlendur á sínum tíma er í fyrsta lagi fáránlegt að veita þeim höfnum/borgum viðurkenningu Sameinuðu þjóðanna fyrir að njóta sem best af þeim viðbjóð. En það er engu að síður arfur mannkyns og þess vegna fékk Liverpool gullstimpilinn á sínum tíma. Þetta er merkilegur arfur mannkyns hvort sem okkur líkar betur eða verr.

Í öllu falli, Liverpool er útaf sakramentinu hjá Unesco. Gamalt og miður gott verður að vera til staðar þó blóð milljóna hafi kostað til.