„Forstjóri Icelandair segist vona að með fjárfestingarsjóðnum PAR Capital fylgi reynsla í flugrekstri og ferðaþjónustu. Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn PAR er nú næst stærsti hluthafinn í Icelandair.”

Forráðamenn erlends vogunarsjóðs með betri hugmyndir um flugrekstrur en sérfræðingar Icelandair. Segir sitt ekki satt…

Æði furðuleg yfirlýsing forstjóra Icelandair vegna kaupa bandarísks vogunarsjóðs á stórum hlut í íslenska flugfélaginu. Yfirlýsing sem enginn íslenskur fjölmiðlamaður setur spurningu við.

Samkvæmt fregn RÚV er Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, himinlifandi með feita innkomu bandarísks vogunarsjóðs í hluthafahópinn. Erlendur vogunarsjóður á nú rúmlega einn tíunda af flugfélaginu Icelandair sem flýgur í Íslands nafni.

Ókei, ekkert athugavert við það per se. Þetta er jú fyrirtæki á hlutabréfamarkaði og hver sem er getur keypt bréf.

Það hins vegar stórlega athugavert að forstjóri Icelandair telji að forráðamenn bandarísks vogunarsjóðs eigi hugmyndir á lager um hvernig megi reka Icelandair betur. Forstjórinn gerir þannig afar lítið úr öllum þeim sérfræðingum sem starfa hjá flugfélaginu.

Tveir úr ritstjórn Fararheill eiga nokkra hundraðkalla í bréfum Marel og Össurar. Það merkir ekki að viðkomandi viti staf um framleiðslu á tækjum fyrir sjávarútveginn og fatlaða. Eiginlega þvert á móti. Vita minna en ekkert.

Þess utan er það eðli vogunarsjóða heimsins að fjárfesta til skamms tíma. Þeir vilja hagnað eigi síðar en í gær. Vogunarsjóðir sem taka sýn til langs tíma eru einfaldlega ekki til í veröldinni.

Sem aftur merkir að fái bandarískir vogunarforstjórar eitthvað um rekstur Icelandair að segja má víst telja að íslenskt starfsfólk fái reisupassa í massavís og þess í stað ráðið láglaunafólk frá Rúmeníu.

Kannski er það draumurinn fyrir Boga Nils forstjóra. Helmingi lægri launakostnaður er plús fyrir kauða þegar stjórnin kemur næst saman. Hann heldur djobbinu og fær bónus og klapp á bakið á sama tíma og flugfélag sem flýgur í nafni Íslands notast við erlent starfsfólk frá láglaunalöndum.

Vill ekki einhver fjölmiðill spyrja Boga nánar út í þetta komment. Þýðir ekkert fyrir okkur að reyna. Enginn hjá Icelandair svarað einu né neinu um áraraðir…