L eiti fólk á helstu flugleitarvélum eftir túr frá farsæla Fróni alla leið til Brasilíu er fátt um fína drætti. Algengt verð á flugi fram og aftur frá 120 þúsund krónum og upp í tvö hundruð þúsund og það jafnvel átta mánuði fram í tímann. En kannski eru flugleitarvélarnar ekki besta lausnin.

Salvador er einn áfangastaða portúgalska flugfélagsins TAP í Brasilíu
Tókum stöðuna á nokkrum vinsælum flugleitarvélum þetta kvöldið og leituðum að flugi til einhvers staðar í Brasilíu frá Íslandinu góða. Momondo, Skyscanner, Dohop, Expedia, Kajak og Kiwi skiluðu niðurstöðum á mettíma en átta mánuði fram í tímann reyndist ódýrasta fargjaldið 122 þúsund krónur og það án alls. Meðalverð var nær því að vera 150 þúsund krónur fram og aftur.
Víkur þá sögunni að ríkisflugfélagi Portúgal TAP Air. Það eina evrópska flugfélagið sem býður flug til fjögurra til sjö áfangastaða í Brasilíu reglulega en framboðið fer eftir árstíma. Hjá TAP fundum við flug aðra leiðina til Salvador í Brasilíu niður í 38 þúsund krónur aðra leið og 87 þúsund krónur fram og aftur í marsmánuði 2020. Engin flugleitarvélanna fann það fargjald.
Það flug auðvitað frá Lissabon en ekki þurfti langa leit til að finna út að við komumst næsta auðveldlega til Lissabon fyrir 30 þúsund krónur svo lengi sem enginn er farangurinn og bókað með góðum fyrirvara. Þar um að ræða flug til London, Osló, Helsinki, Köben, Frankfurt eða Alicante og svo áfram með lággjaldaflugfélagi.
Smá vesen? Já. Þess virði? Hundrað prósent 😉







