Hmmm. Við beggja blands með að gefa ráð um framtíð Icelandair. Flugfélagið er jú nú að stórum hluta í eigu bandarískra aðila og okkur skilst að raðsvindlarinn Pálmi Haraldsson eigi líka feitan hlut í þessu batteríi. Það eitt og sér ástæða til að nota önnur flugfélög.

En það er önnur ástæða fyrir að við viljum henda stjórn og forráðamönnum Icelandair á haugana eigi síðar en í gær. Þetta lið veit ekkert í sinn haus og því miður eiga lífeyrissjóðir landsmanna enn drjúgan hlut í flugfélaginu. Sem þýðir að eftirlaun þúsunda verða klink og ingenting af því að forráðamenn Icelandair eru ekki starfi sínu vaxnir.

Lítum aðeins á nokkrar staðreyndir:

A) Hlutabréf í Icelandair kosta nú það sama og þau kostuðu í byrjun árs 2012 eða ÁÐUR en Justin Bieber kom Íslandi á kortið hjá sínum tugmilljónum aðdáenda. ÁÐUR en fjöldi erlendra ferðamanna til Íslands taldi milljónir í stað hundruð þúsunda. ÁÐUR en hver Hollywood-stórmyndin á fætur annarri var tekin hér á landi með tilheyrandi landkynningu.

B) Hlutabréf í Icelandair fóru á toppinn í aprílmánuði 2016 og kostaði hvert bréf þá 38 krónur. Það ár fóru 1,8 milljónir ferðamanna um Leifsstöð. Ári síðar var hæsta virði bréfa Icelandair um sextán krónur á hlut þó mun fleiri erlendir ferðamenn færu um Leifsstöðina. Bara 2,2 milljónir það ár. Ári síðar var toppvirði bréfs í Icelandair ennþá í sextán krónum en ferðamönnum um Leifsstöð fjölgaði í 2,3 milljónir. Hæsta virði bréfs í Icelandair hingað til á þessu ári er ellefu krónur per hlut. Virði hlutabréfa í Icelandair hefur frá toppnum 2016 fallið um 84 PRÓSENT!!!

C) Dótturfélag Icelandair, hið feykilvel nefnda Air Iceland Connect, er með böggum Hildar, Bjarna og Gullu líka. Innanlandsflugfélagið blæddi farþegum hraðar en Boeing Max þó þær séu góðu heilli kyrrsettar þessa stundina. En Air Iceland Connect hefur ekki tekist að fjölga innanlandsfarþegum um einn einasta farþega frá árinu 2011. Það þrátt fyrir að fjöldi erlendra ferðamanna hafi aukist úr 300 þúsundum í vel rúmar tvær milljónir og íbúum á landinu hafi fjölgað úr rúmlega 300 þúsund í 350 þúsund á þessum sama tíma. En endilega hanga samt á sama forstjóranum…

D) Áður en gengi Icelandair fór að dala eyddu forsvarsmenn þess mestöllum hagnaði í að kaupa eigin bréf og verðlauna stjórnarmenn og hlutabréfaeigendur í stað þess að byggja til framtíðar. Stjórnarmennirnir brosa breitt og kaupa sér flugfélag á Grænhöfðaeyjum en flugfélagið sjálft í tómu tjóni og óvíst hvort fimmtíu milljarðar á bók dugi til að bjarga Icelandair frá þroti í kjölfar þess að veðja öllu á nýjar vafasamar bandarískar vélar sem kannski fara aldrei í loftið á nýjan leik.

Víst hefur Björgólfur Jóhannsson tekið pokann sinn og góðu heilli. En sitjandi forstjóri var líka innanbúðarmaður þegar feit mistök voru gerð. Sá var fjármálastjóri og ætti að hafa varað stjórnarmenn við of mikilli greddu. En gerði ekki.

Enginn hér að syrgja það mikið ef Icelandair fer yfir um. Nema fyrir þá sök að þá situr feitt fólk eftir í stjórnum lífeyrissjóða landsmanna og segist saklaust af öllu. Fólk sem aldrei heimtaði nýtt og ferskt fólk í stað þeirra sem hafa fellt gengi flugfélagsins um tæplega 90 prósent!!!