Frökkum verður líklega ekki heimilt að ferðast erlendis né erlendu ferðafólki heimilað að heimsækja Frakkland þetta sumarið ef marka má yfirlýsingar stjórnvalda. Grikkir stefna þó ótrauðir á að opna búlluna strax í júlí.

Ávallt gott að signa sig en áin Signa verður líklega að bíða betri tíma en sumarsins 2020.

Forseti Frakklands sagði í sjónvarpsávarpi að fólk ætti ekki að gera ráð fyrir að ferðast mikið utan landsteinanna þetta sumarið og meira að segja ferðir innan landsins verða takmarkaðar í allt sumar ef að líkum lætur. Forsetinn tók þó fram að lokaákvörðun um slíkt yrði tekin í byrjun júní og þá hugsanlega endurskoðuð ef tilefni þætti til.

Grísk stjórnvöld, sem eru öllu fátækari en þau frönsku og reiða sig meira á túrisma, eru á hinum enda skalans. Þar er unnið hörðum höndum að því að opna allt landið fyrir ferðalöngum og það eigi síðar en um miðjan júlí og helst fyrr.

Grikkir reyndar í betri stöðu en Frakkarnir því kórónatilfelli þar í landi tiltölulega fá enn sem komið er. Ef það breytist ekki til hins verra gætu sólþyrstir því kannski dúllað sér þar í landi síðpart sumars en þó aðeins ef þeir komast þangað…