Líkamsskannar þeir sem vakið hafa upp miklar deilur í Bandaríkjunum hafa komið til skoðunar öryggisdeildar í Leifsstöð en engin ákvörðun hefur verið tekin um uppsetningu slíkra tækja hérlendis.
Segir Stefán Thordersen, yfirmaður öryggismála í Leifsstöð, við Fararheill að vandlega sé fylgst með þróun allra tækja og tækni í öryggisgeiranum en þessi ákveðnu tæki hafi þó ekki hlotið vottun hjá Evrópusambandinu nema í tilraunaskyni.
„Um tvær aðferðir skoðunar er um að ræða í þessum tækjum sem eru með notkun röntgengeisla og hinsvegar notkun rafsegulsbylgja. Leiðum við að því líkur að ef svona tæki verði tekin í notkun hjá okkur þá verði rafsegulsbylgjutæknin fyrir valinu þar sem röntgengeislun þeirra sem færu í gegn er óæskileg.
Bandarísk yfirvöld hafa ekki ennþá krafist þess að flugfarþegar á leið vestur um hafa undirgangist slíka skoðun. Við vitum þó aldrei á hverju við eigum von úr þeirri áttinni en nýjar kröfur líta ávallt dagsins ljós ef einhver áföll dynja yfir í flugheiminum.“






